this is me

me and my self

19.05.2007 17:23:02 / tota

hello

jæja, kannski kominn tími til að blogga aðeins.. ekki beint búin að nenna blogga síðustu daga (vikur) enda nóg að gera..

skólinn er að fara klárast eftir 2 vikur en þá tekur vinnuskólinn bara við allan daginn. ég er byrjuð að undirbúa sumarið og vinna í vinnuskólanum. flokkstjórarnir mínir eru byrjaðir en ég byrja ekki alveg á fullu fyrr en skólinn klárast. er reyndar líka byrjuð að vinna í Gula húsinu eins og síðasta sumar. (sjá um búningaaðstöðuna við fótboltavölllinn) Það er fín aukavinna.

Það er að fara koma endi á þetta parketmál og vonandi getum við farið að rífa upp parketið hérna og setja nýtt.. Fara klára þetta loksins. Þá er hægt að fara setja listana, síðustu hurðina og mála. Koma þessu í rétt horf.

Ég mun ekki blogga mikið á næstunni enda búin að fá smá ógeð á þessu bloggdóti og nóg annað að gera. Vildi bara rétt svona skrifa smá inn nokkrum orðum..

Gleðilegt sumar allir saman..


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 16:56:49 / tota

endalaust afmæli í fjölskyldunni

Já Ellen litla systa varð 4 ára í dag og Þórir litli bróðir er 6 ára í gær. Bara gaman að þessu. Leiðinlegt hvað þau búa langt í burtu (búa á Akureyri núna) ég sendi þeim bara pakka í staðinn. Meira að segja keypt í útlöndum, bara flott að fá afmælispakka frá Spáni. ;)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 15:44:51 / tota

leti leti

já þessi dagur er tileinkaður í LETI takk fyrir.. Síðustu vikur hafa verið svo erfiðar eitthvað að ég ætla mér að gera lítið sem ekkert í dag nema slaka á og horfa á imbann.. vafra líka um á netinu, bara letidagur..

aggi frændi á afmæli í dag og vil óska honum innilega til hamingju með það. :haha: 

það er ekkert smá gott að fá svona aukafrídag inní miðri vinnuviku... geta sofið út og svo legið bara í náttfötunum allan daginn án þess að fá samviskubit. sé það greinilega í dag að mig vantar fleiri svona daga. hvernig væri að fara bæta inní dagatalið nokkrum hátíðardögum, svona bara til að leyfa fólki að ná aftur andanum eftir erfiða vinnudaga. Við verðum mun öflugri í vinnunni í staðinn á eftir..

núna dælist inn hjá manni kosningaáróður og er orðin strax þreytt á þessu. Hef aldrei verið mikið fyrir stjórnmál og þoli ekki þennan áróður rétt fyrir kosningar. Hef aldrei átt minn stjórnmálaflokk en veit bara að einn vissan flokk mun ég ALDREI kjósa en nenni ekki að skipta mér meira að þessu. Ég hef mikinn áhuga að komast inní bæjarmál hérna en þá þarf maður að vera flokksbundinn greinilega til að hafa eitthvað að segja. Veit ekki hvort ég gæti valið mér einhvern flokk og farið eftir því. Í svona litlu bæjarfélagi þá finnst mér að við eigum að velja fólk en ekki flokka. Við höfum síðan öll okkar mismunandi skoðanir og hef því það sem reglu að það verði ekki rædd stjórnmál á þessu heimili. Mér leiðist að ræða stjórnmál. Vil ekki fara í vont skap útaf einhverju bulli.. :whut:

En útí skemmtilegri sálma. Sumarið að koma og hlakka til að geta farið að grilla. Náum vonandi að vinna vel í húsinu í sumar. Helluleggja fyrir framan og gera þetta rosa flott. síðan förum við í að leggja pallinn og slíkt líka í sumar vonandi..

ætla fara klæða mig, tengdamamma að fara koma í heimsókn. hún verður hjá okkur í nokkra daga..


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 22:43:44 / tota

lítill prins fæddur

já ég verð að óska hafdísi og sveinbirni innilega til hamingju með litla prinsinn. hann kom í heiminn í nótt. Enda bara flottasti dagurinn til að fæðast. :haha:

hlakka til að geta séð prinsinn síðan seinna. vona að þið verðið svo dugleg að skella myndum af prinsinum inná netið (eða senda manni) svo að þeir ´sem búa útá landi geti fylgst með..

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 19:15:31 / tota

afmælisbörn dagsins

já það eiga bara snillingar afmæli í dag.

Heiðrún mín, innilega til hamingju með daginn enn og aftur.. :haha:

Svavar minn, enn og aftur til hamingju með daginn.. :haha:

Síðan á Marta kennari líka afmæli og 2 nemendur mínir líka.

Ótrúlegt hvað margir eiga afmæli í apríl. En vil óska öllum þeim sem hafa átt afmæli síðasta mánuðinn innilega til hamingju. Hef verið mjög léleg að blogga um afmæli vina minna undanfarið... Sorry :$


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 19:07:16 / tota

smá uppfærsla

í tilefni dagsins verð ég að koma mér í að blogga aðeins...

ég löngu komin frá spáni og er búin að vera á fullu síðan.

  • Fékk meiri sól og lit í pottinum í sundlaug Grindavíkur helgina sem ég kom heim frá spáni heldur en allan tímann á spáni. Ekki sátt við tanleysið úti en fín ferð samt.  Orri næstum brúnni en ég og það gengur ekki upp..
  • Er að kenna alltaf alla daga og nóg að gera þar eins og alltaf. Prófin líka að klárast hjá okkur og að reyna ná til þeirra sem eru ekki búin að klára öll prófin.
  • Er ennþá að þjálfa körfu á fullu en sem betur fer er lokahófið næsta miðvikudag og við komin þá í sumarfrí. Komið fínt í bili..
  • Búin að taka að mér aukaæfingar 3x í viku klukkan 6 á morgnanna fyrir VIP hópinn minn í meistaraflokk kvenna í fótboltanum. Bara gaman þar. Er meira að segja að reyna hreyfa mig eitthvað með þeim eins og maður er vaknaður á þessum tíma. Kannski maður geti komið sér í form fljótlega með þessu..
  • Sá um Víðavangshlaup Grunnskóla Grindavíkur og Foreldrafélagsins sumardaginn fyrsta. Mjög gott veður þann dag og þetta var fín skemmtun.  
  • Fór á lokahóf í körfunni (reyndar bara ballið) um síðustu helgi. Það var fínt. Vorum með smá partý fyrir fótboltastrákana á undan. Ég grillaði fyrir þá og var með rosa meðlæti með. Það var fín stemmning. Ballið var reyndar ekki eins skemmtilegt. En fínt samt.
  • Búin að ráða mig í vinnu í sumar. Verð yfir vinnuskólanum og því sem tengist öllu því. Titluð því sem yfirflokkstjóri eða skólastjóri vinnuskólans. Rosa titill eitthvað.. En held að þetta verði nokkuð kröfumikil staða en samt mjög gott fyrir mann að þurfa bera meiri ábyrgð og reyna á sig í svona stjórnunarstöðu. Hlakka til að takast á við þetta.
  • Vinavika var í síðustu viku hjá okkur kennurunum og ég fann þá hvað við Orri erum mikið útúr kennarahópnum. Erfitt að reyna vera góður við vininn sinn svona langt í burtu. Þarf meiri skipulag og kænsku til að gleðja vin sinn og passa að komist ekki upp hver þetta sé. Ég var mjög góð við minn vin en hefði vilja hafa meiri tíma til að finna skemmtilega hluti handa henni. Síðan var vinaball fyrir alla kennarana og maka á föstudagskvöldið og mikið húllumhæ. Rosalega góð stemmning og allir virtust skemmta sér mjög vel.
  • Fórum með hóp í körfunni að keppa í gær Á Ásvelli og það gekk rosalega vel. Strákarnir okkar unnu alla sína leiki og voru að spila mjög vel. Ekkert smá gaman að enda veturinn svona fyrir þá. Bara ein æfing eftir og svo lokahóf.  
  • Ég hélt uppá afmælið mitt aðeins fyrr og var með smá veislu á laugardagskvöldið. Það var fín mæting og gaman að hitta alla. Stelpurnar í fótboltanum voru mjög duglegar í snarlinu. ;)  Vil bara þakka fyrir mig enn og aftur.
  • Síðan var ég að halda afmæliskaffi fyrir fjölskyldu og aðra vini í dag. Það komust ekki allir en þetta var mjög fínt. Finnst svo gaman að hafa gesti. :D 
  • Landsbankahlaupið er svo næsta laugardag og ég er tengiliður FRÍ hérna í Grindavík. Það verður því nokkuð upptekin vika hjá mér á næstunni að undirbúa allt. Það er gaman að taka svona verkefni. Er að vinna með Sibba í Landsbankanum við þetta og gengur mjög vel.
  • En er að hugsa um að leggjast uppí rúm og glápa aðeins á tv-ið. Búin að vera á fullu í 2 daga að undirbúa veislu og kaffi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 12:31:15 / tota

Sídasti dagurinn á Spáni

Thá fer madur ad koma sér aftur heim til Íslands. Thad verdur alveg ágaett ad komast heim en Orri kemur ekki heim fyrr en annad kvold. Vid munum lenda rétt um 2 eftir midnaetti..

Thad er ekki búin ad vera mikil sól thannig ad tanid er ekki beint frábaert en thad hefur verid mjog gott aefingavedur. Rigndi á okkur rosalega einn daginn og allt rennandi blautt.. Thurfti ad taka oll fotin stelpnanna og láta thurka thau.

En thad verdur afsloppun um helgina og aetla ad nyta thad vel. Sídan byrjar kennslan aftur á mánudaginn. Ég er strax farin ad telja nidur í sumarfríid. Er ennthá ad reyna ákveda hvad ég eigi ad gera af mér í sumar. Nenni samt ekki ad vera í horku vinnu med born thegar madur er búin ad vera kenna thessum bornum í allan vetur.

Nenni ekki ad blogga  meira. Vildi bara láta vita ad ég vaeri á leid heim ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 09:46:10 / tota

á spáni er gott ad djamma og djúsa, diskótekunum á. HEY

Ég er kannski ekki alveg ad djamma og djúsa. Er frekar ad slaka á og hlada batteríin. Bara nice.

Ferdin út gekk mjog vel, fyrir utan thad ad thurfa bída eftir toskunum á flugvellinum í ADEINS einn og hálfan tíma. Ég var ekki med neitt far uppí Albir og hélt ad ég thurfti ad taka taxa ein og thad tekur um 45mín og kostar um 75 evrur. Ekki alveg ad nenna thví. :S  En í rodinni í ad borda mig inn í vélina heyrdi ég ad eldri hjón sem voru fyrir framan mig voru ad tala um ad thau vaeru ad fara til Albir. Ég hugsadi med mér ad ég thyrfti ad tala vid thau og athuga hvort thau vissu um far thangad. Haldid ekki ad thau setjist svo hlidina á mér í flugvélinni. Ég spjalla vid thau en thau segja ad thad sé ekki laust med theim thví sonur theirra muni ná í thau og hann myndi taka daetur sínar med. En thá aetladi ég ad reyna redda thessu odruvísi. Thegar vid erum lent thá labba ég med theim út. Thau voru ad ferdast líka med dóttur theirra og fjolskyldu hennar. Thau ákveda ad leyfa mér ad koma med theim í Albir og aetludu bara ad reyna troda mér med theim í bílana. Thegar vid vorum búin ad bída alltof lengi eftir toskunum tha kom thad í ljós ad sonur eldri hjónanna var bara med adra stelpuna med sér og thví pláss med theim til Albir. Hann bjó svo í gotu sem var rétt vid gotuna sem ég var ad fara í. Thannig ad thessi ferd var alger himnasending fyrir mig. Fékk óvaent far fyrr út og nádi ad redda ollu án thess ad thurfa fara ein í taxa ad nóttu til til Albir. Bara fegin.:D

Ég er búin ad labba Albir út í gegn, fara til Benidorm ad skoda, fara í markad í naesta bae vid og slaka vel á. Er ekki ad stredast neitt til ad versla eda liggja í sólbadi. Er bara ad reyna hafa thad gott og ná ad hlada batteríin eftir erfidan vetur. :$

Stelpurnar koma svo á laugardaginn og ég tek á móti theim á flugvellinum og fer med theim til LaManga thar sem vid verdum í viku. Gaman ad hitta thaer sídan.

Vedrid hérna er nokkud gott, sólin ekki of heit en gódur hiti. Reyndar spád rigningu naestu daga en vona ad thad verdi ekki of mikil rigning. Vil geta haft sól og notid thess ad labba um stadinn og hafa thad gott..

Sólarkvedja frá Albir, Spáni...

Tóta


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.03.2007 10:17:13 / tota

bara snilld

já ég komst að því í gær að ég gæti komist ennþá fyrr út en ég ætlaði..

8)  Ég er því að fara út eftir 5 tíma takk fyrir takk.. 8)

 Ég verð í Albir í viku hjá vinkonu minni sem á hús þar og ætla njóta þess að gera ekki neitt nema slaka á. :haha:  Síðan koma stelpurnar út eftir einmitt viku núna og þá tek ég á móti þeim á flugvellinum og fer með þeim til LaManga. Þar verðum við í rúma viku í góðu yfirlæti og góðum æfingum. (ég hef nú gott af því að hreyfa mig eitthvað með þeim)  

Vil því bara segja við ykkur gleðilega páska og hafið það sem allra best. Ég ætla reyna blogga aðeins meðan ég er úti. Bara láta vita hvernig það er á Spáni. (týpískt samt að það verði rigning og engin sól en það skiptir ekki öllu máli, ég er að fara fyrr út til að slaka á og gera lítið sem ekki neitt..)

Yfir og út.. (ætla fara halda áfram að pakka og redda því sem þarf að redda)


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 20:13:17 / tota

ný færsla..

jæja ætli maður verði ekki að reyna blogga eitthvað. maður veit samt nú aldrei til hvers því maður er ekki alveg viss hver sé eiginlega að lesa þetta..

það er búið að vera rosalega mikið að gera hjá okkur. Erum að vinna mikið, þjálfa og reyna að brasa eitthvað í húsinu. (það gengur reyndar ekkert) Já svo er orri mjög duglegur að æfa en get ekki sagt það sama.. Ekki alveg sami krafturinn til að koma mér af stað í ræktina og áður fyrr.. Líkaminn líka oft mjög þreyttur og búin að ákveða að vinna ekki svona mikið næsta vetur heldur reyna rækta sjálfa mig betur.. ;)

En það styttist í páskaferðina góðu og ég mun fara á undan fótboltahópnum og taka svo á móti þeim á flugvellinum. Kemst samt bara 3 dögum fyrr út en er að reyna komast ennþá fyrr en allt uppbókað eins og er.. Bíð eftir kraftaverki að eitt sæti losni nokkrum dögum fyrr þannig að ég geti helst verið búin að vera 1 viku úti á Spáni áður en stelpurnar koma.. Það yrði bara snilld og hefði svo gott af því :haha:

Grindavík er núna að spila oddaleikinn við Skallagrím í körfuboltanum í Borgarnesi og ég var ekki alveg að meika ferðast í rútu í þessu veðri og sit því heima og styð þá bara í anda. Þeir unnu líka síðast í Borgarnesi og ég fór ekki þá ;)  Reyni bara að halda í hefðina.

Já vegna þess að ferðin út seinkaði um viku þá kemst ég ekki norður að horfa á Fitness keppnina um páskana. Við áttum að fara út 30.mars en förum í staðinn 7.apríl og komum því ekki heim fyrr en 13.apríl. Ég mun reyndar fara síðan út 4.apríl ein og sóla mig aðeins hjá vinkonu mínum á Spáni í nokkra daga..

En hvernig væri að kvitta fyrir svo maður gæti séð hverjir væru að kíkka á þetta blogg mitt :$


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 21:35:25 / tota

leiðindar net

já var búin að skrifa helling og ýtti á staðfesta þá einmitt var eitthvað klikkelsi í netsambandinu og allt datt út.. :evil:

þá byrja ég bara aftur en nenni ekki að skrifa allt aftur..

ekki sátt við þetta blessaða x-factor, leiðindar rígur oft á milli dómaranna og fáranleg símakosning.. ekki sátt við þau atriði sem hafa verið neðst meðan aðrir sem eru ekki að standa sig eins vel eru alltaf save.. en svona er þetta og nenni ekki að skrifa allt aftur sem ég var búin að skrifa um þennan þátt... idolið var mun betra..

spánarferðin breyttist og förum viku seinna út. Það þýðir að ég þarf að fá frí úr vinnu því páskafríið verður búið þegar við erum ennþá úti. En ég ætla nýta þessa ferð eins vel og ég get. Er að redda því að fara ein fyrr út og gista hjá vinkonu minni sem á hús úti á spáni rétt þar sem stelpurnar verða í æfingabúðunum. Ekki slæmt að fá nokkra aukadaga í sólinni til að slaka á og sleikja sólina.. :haha:

en nenni ekki að endurrita meira sem ég var búin að skrifa.. góða helgi allir saman


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 23:45:36 / tota

lítill prins fæddur

já var að fá æðislegt sms um það að lítill prins hafi fæðst á akureyri um hálf níu leytið í kvöld.. ég var samt ekki alveg að fatta strax þetta sms því enginn ætti að vera fæða barn núna samkvæmt læknatali..

en birna og tóti voru að eignast lítinn prins  :haha:  innilega til hamingju enn og aftur.. hann kom aðeins fyrr en áætlað var en kraftaverkin gera ekki boð á undan sér..

hver verður svo næst að fjölga mannkyninu stelpur ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 20:32:48 / tota

nóg að gera

hér ligg ég eins og skata uppí rúmi að horfa á oprah og vafra um á netinu. mikil þreyta í mér og ekki beint að nenna neinu.. :S  ég fór ekki einu sinni að horfa á kallinn minn spila í kvöld (enda ekki með bíl til að fara) en þeir voru að spila á móti Keflavík í Keflavík. Þeir töpuðu því miður en haldið ekki að kallinn hafi sett samt eitt.. ;)  en nóg að gera í boltanum hjá strákunum núna. strangar æfingar, nóg af leikjum og síðan góð æfingaferð plönuð um páskana.

já ég held að ég hafi ekki sagt hvað ég mun gera um páskana.. :D  bara spennandi.. ég mun fara til spánar með meistaraflokk kvenna í fótbolta sem fararstóri.. bara snilld 8)  skemmtilegur hópur þar á ferð og held að þetta verði bara gaman.. gaman að komast út þó ég fari ekki sjálf í æfingabúðir ennþá..

húsið okkar, já hvað getur maður sagt.. nenni ekki að ræða það neitt meira.. vona bara að það fari að koma einhverjar góðar fréttir.. :evil:

það er nóg að gera í skólanum. fer á morgun með skemmtilegan hóp í skólahreysti. Þau greyin eru mjög stressuð en þau eiga bara að hafa gaman að þessu og gera sitt besta. Erfitt að keppa á móti einstaklingum sem eru í rosalegri æfingu. Sá þátt í gær og þar var einn mjög öflugur strákur.. Ekta fimleikastrákur, léttur og mjög sterkur. Krakkarnir mínir eru því miður ekki að æfa neitt. (ekki beint besta auglýsingin fyrir skólann en þau eru mjög öflug)  Ég hefði alveg viljað keppa í svona keppni þegar ég var í grunnskóla. Held að hraðabrautin hafi verið fín fyrir mig. Þó að ég geti kannski gert nokkuð margar armbeygjur þá á ekki vel við mig að hanga. Ég er með svo stutta fingur og gæti ekki haldið mér nógu lengi uppi. Síðan er að koma skemmtileg keppni aftur til sögunnar, Skólaþríþraut.. Mjög sátt við það. Þetta var alltaf hér áður fyrr en ég fékk aldrei sjálf að keppa í svipaðri keppni. Mjög gaman að sjá að ALLIR skólar í landinu geti tekið þátt ef þeir vilja. Ég vil meira af svona hér á landi. Við séum að gera meira fyrir krakkana og leyfa þeim að spreyta sig á hinu ýmsu. Sigurvegarar í þessari keppni fá að fara á Gautaborgarleikana að keppa. Rosalega sniðugt.

en ætla að reyna gera eitthvað áður en maður sofnar alveg..


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 16:50:33 / tota

mikil þreyta í gangi

já hérna sit ég í skólanum, nýbúin á fundi með íþróttaráðinu og alveg að deyja úr þreytu í augunum!!!!!!!!!!!!!!! Ótrúlegt hvað ég er þreytt í augunum og hausnum. Þetta hefur líka verið strangir dagar undanfarið og margt að gerast. En er að fara norður á fimmtudag og get vonandi endurnýjað orkuna þar í sveitasælunni. Já við systurnar 3 ætlum að skella okkur saman á þorrablót í sveitinni.. Bara snilld. Við höfum aldrei farið saman á þorrablót heima og ég hef reyndar ekki farið á þorrablót heima síðan ég var 17 ára gömul. 8|  (komin nokkur ár síðan)

En já húsamálin eru eins, nema að byggingarfulltrúinn er búinn að skoða húsið og er að gera skýrslu sem ég get svo notað í að fá eitthvað til baka frá þeim sem selja okkur. Hann gat nú ekki annað en hlegið að sumu í húsinu :S  hann sagðist aldrei hafa séð annað eins.. En þetta fer allt batnandi og verður orðið frábært vonandi fljótlega. ;) (maður verður að vera bjartsýnn)

Ég byrja formlega að þjálfa meistaraflokk kvenna í fótbolta í kvöld og mun láta þær taka skemmtilega hlaupaæfingu. Ekki beint gaman að koma inní æfingarnar með svona hætti en þetta verður allt mun betra. Lofa því stelpur mínar. :D  ´

En ætla fara koma mér hérðan úr skólanum. Heyrumst


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 21:25:30 / tota

áfram ísland

já íslenska landsliðið fór alveg á kostum í gær. maður bjóst alls ekki við svona leik. Ég verð að viðurkenna að ég taldi að það væru MJÖG litlar líkur á að við myndum vinna Frakkana enda þeir með eitt besta liðið í keppninni. En strákarnir sýndu að þeir geta gert allt sem þeir vilja ef þeir eiga góðan dag. Vonum því bara að þeir hafi ekki notað allt púðrið í þennan leik og geti sýnt áfram sínar bestu hliðar. Finnst bara æðislegt að vera komin áfram og geta haldið áfram með handboltaæðið.. ÁFRAM ÍSLAND..... :haha::haha:

En að öðru, skólinn minn mun keppa í Skólahreysti og þau eru rosalega spennt. Erfitt að hafa ekki Fitness brautina fyrir þau til að æfa sig í en þau eru að reyna æfa sig eitthvað fyrir keppnina. Eigum að keppa í Smáranum 8.febrúar og búin að fá rútu til að fá sem flesta til að styðja þau og hafa gaman af.. Bara gaman að geta boðið uppá eitthvað nýtt fyrir krakkana.

Ég er svo loksins byrjuð að hreyfa mig aftur, enn og aftur. En ætla reyna láta þetta endast núna því ég ætla koma mér aftur í bikiníform. Er örugglega að fara til Spánar um páskana og skemmtilegra að vera í formi til að spranga um í sólarfötunum.. ;)

Já ég er líka komin í kvennaráð körfunnar. (kvennakörfunnar) Við erum núna að undirbúa Kvennakvöld körfunnar sem verður um miðjan febrúar. Bara snilld. Fór í fyrra og það var rosalega gaman. Það verður örugglega miklu meira fjör í ár :D  Allar konur að mæta...


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 40