this is me

me and my self

30.01.2007 16:50:33 / tota

mikil þreyta í gangi

já hérna sit ég í skólanum, nýbúin á fundi með íþróttaráðinu og alveg að deyja úr þreytu í augunum!!!!!!!!!!!!!!! Ótrúlegt hvað ég er þreytt í augunum og hausnum. Þetta hefur líka verið strangir dagar undanfarið og margt að gerast. En er að fara norður á fimmtudag og get vonandi endurnýjað orkuna þar í sveitasælunni. Já við systurnar 3 ætlum að skella okkur saman á þorrablót í sveitinni.. Bara snilld. Við höfum aldrei farið saman á þorrablót heima og ég hef reyndar ekki farið á þorrablót heima síðan ég var 17 ára gömul. 8|  (komin nokkur ár síðan)

En já húsamálin eru eins, nema að byggingarfulltrúinn er búinn að skoða húsið og er að gera skýrslu sem ég get svo notað í að fá eitthvað til baka frá þeim sem selja okkur. Hann gat nú ekki annað en hlegið að sumu í húsinu :S  hann sagðist aldrei hafa séð annað eins.. En þetta fer allt batnandi og verður orðið frábært vonandi fljótlega. ;) (maður verður að vera bjartsýnn)

Ég byrja formlega að þjálfa meistaraflokk kvenna í fótbolta í kvöld og mun láta þær taka skemmtilega hlaupaæfingu. Ekki beint gaman að koma inní æfingarnar með svona hætti en þetta verður allt mun betra. Lofa því stelpur mínar. :D  ´

En ætla fara koma mér hérðan úr skólanum. Heyrumst

Soffía skrifaði
Góða ferð norður.....
ólöf helga skrifaði
nau nau nau.... verður þú þjálfir mfl kvk í fótb.. ég hafði ekki guðmund um það... gaman gaman, þá verð eg sko pottó með í boltanum í sumar..;) skemmtu þér vel fyrir norðan ég get ekki sofið, býð eftir doom day á morgun úllabaddarí
Petra Rós skrifaði
hey já velkomin til starfa. En lærin voru svolítið þreytt eftir fyrstu hlaupaæfinguna þína :S en ég tók þessu sem merkjum um að ég geti bara bætt mig þokkalega ;) Og skemmtu þér vel á þorrablótinu.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.